Pages

Ads 468x60px

Featured Posts

012b

DSCN0233b
IMG_1775j
IMAG0250b

DSCN0262b

Tuesday, January 22, 2013

Innblásið af Héraði(Shire)


Hefur lengi dreymt um að gera nokkur lúkk sem eru "inspæeruð"(flott orð ekki satt ) af Lord of the rings myndunum.
Það er hinsvegar svo langt síðan þær komu út að mér fannst ég vera eitthvað voðalega mikið eftir á, en þú þegar Hobbitinn er kominn í bíó verður þessi draumur að veruleika :). Finnst allt umhverfið og persónurnar svo fallegar og frábærar að það á eiga líklegast eftir að koma ó fá lúkk sem ég tengi við myndina á einn eða annan hátt og ég býst við að þau verði mis dramatísk.
Svona allt frá því að vera svona til daglegsbrúks í það að detta í búningapartýið :)

Þetta lúkk er innblásið af Héraði (Shire) og umhverfinu þar í kring.

Augu:
Make up Store microshadow - Indigo (mjög glannsandi skógar grænn)
Make up Store microshadow - Chocolate fondant (dökkbrúnn með gylltu glimmeri)
Mac - Soft brown (mattur hlýr ljós brúnn, með appelsínugulum/rauðum undirtón)
Mac - Mylar (sanseraður/mattur, ljós litur)
Urban decay 24/7 liner - Burbon (brúnn með smá gylltri sanseringu)
Urban decay 24/7 liner - Zero (svartur)
Maybelline Voluminous - 100% black



Friday, January 11, 2013

Nýtt stuff í snyrtibuddunni(skúffunni?)

Fyrir nokkrum dögum komu loksins vörurnar mínar frá Sugarpill, pantaði þær í byrjun desember. Note to self ekki panta dót þegar jóla-seasonið er að byrja. Ég fékk þær loksins í hendurnar eftir að hafa greitt helminginn af því sem ég greiddi fyrir vörurnar í virðisaukaskatt og önnur gjöld(hvað er það? :s ).
Fyrst eru það 3 pigment sem ég keypti í setti
Hysteric, Goldilux, Junebug
Ég pantaði tvo staka augnskugga, sá svarti kom brotinn :( ég pressaði hann aftur en hann lítur svolítið fönkí út núna :p
Bulletproof og Dollypop
 Síðast en ekki síst er það pallettan

Flamepoint, Buttercupcake, Love + og Poisom plum
Ég notaði þéttan bursta og Urban decay primer potion undir þegar ég prófaði litina, ég fór bara einu sinni ofan í hvern lit og eins og þið sjáið á myndunum eru litirnir alveg ótrúlegir :)
Ég notaði fjólubláa litinn Poison plum til að gera smokey förðun í skólanum á samnemanda minn og persónulega finnst mér það hafa komið vel út :)
Vert er að bæta við að hægt er að kaupa Sugarpill vörurnar og láta senda til Íslands frá síðunni www.sugarpillshop.com 

Þangað til næst,
Helga Katrín



Friday, December 28, 2012

Árámóta lúkk number tres: Fyrir þær gylltu

Þriðja lúkkið er fyrir þær sem vilja ekkert með silfrið hafa heldur stefna beint á gullið :)
Þetta er alls ekki erfitt og ekkert of dramatískt, smá semelíusteinar til að gera þetta smá öðruvísi en vanarlega.

Augu
Urban decay primer potion
Body shop Kajal eyeliner (svartur eyeliner sem er ekki vatnsheldur skiptir ekki máli hvað þið notið)
Mac Woodwinked augnskuggi (brún/gylltur augnskuggi með málm áferð)
Mac Soft brown augnskuggi (mattur brúnn sem er nokkrum tónum dekkri en þinn eiginn húðlitur)
Mac Mylar augnskuggi (hvaða ljós/ hvítur með pínu gljáa)
Urban decay Creep (svartur dökkur, þessi er með smá glimmeri í en það er ekki nauðsyn)
Urban decay Zero eyeliner (basic svartur vatnsheldur)
Gylltir semelíusteinar (hægt að kaupa í snyrtivöru búðum en einnig ódýrara oft í föndurbúðum eða steina sem eru ætlaðir á neglur)
Too faced Glitter glue (augnháralím virkar fínt)
Maybelline Colossal Volume 


















Og núna held ég að þetta vidjó stúss sé alveg að koma hjá mér :p (krossa putta og tær)

Thursday, December 27, 2012

Áramóta lúkk nr 2

Upptaka tókst ekki jafn vel í þetta skiptið er hellings úr fókus :( en ég hafði þegar tekið þetta upp einu sinni en þá sást ekkert þannig ég ákvað að láta þetta duga í þetta skiptið.
Ætla að reyna að ná að taka upp í dagsbirtu á morgun, tekst vonandi betur en núna :)

Wednesday, December 26, 2012

Á áramótunum ætla ég að vera diskókúla :)

Hérna fyrsta áramóta lúkkið ætla að reyna að henda inn allaveganna 2-3 í viðbót.
Augu:
Elf eyelid primer
Maybelline color tattoo í Audacious Asphalt
Body shop augnskuggi í 02 Moonstone
Ljós augnskuggi og ljós brúnn augnskuggi úr 88 pallettu
Urban decay Heavy metal glitter liner í Glam rock
Glimmer í Raunow silver (úr búðinni Zebra á Laugavegi)
Maybelline master precise blautur liner
Urban decay blýantur í Perversion
Maybelline Colossal volume express
Held mér hafi bara tekist svona ágætlega upp að gera kennslu vidjó :)

Þangað til næst
Helga Katrín

Thursday, December 20, 2012

Jólaglimmer-skref fyrir skref

Ég hafði hugsað mér að gera vidjó fyrir þetta lúkk en þar sem röddin mín ákvað að yfirgefa svæðið verður þetta bara skref fyrir skref í myndum :).
Svo byrjum á þessu
Ég byrjaði á því að setja primer í kringum augun ég notaði Elf eyelid primer.
Því næst setti ég Maybellin color tattoo krem augnskugga í litnum Eternal Gold yfir augnlokið en bara að  glóbuslínunni(crease á ensku, línan sem "beyglan" sem myndast á augnlokið þegar þú opnar augun).













Næst tók ég Loréal augnskugga í Goldmine og setti hann á augnlokið. Vegna krem augnskuggans verður liturinn mun meira áberandi.






















Næst notaði ég ég brúnan augnskugga úr Naked pallettunni minni sem heitir Buck(getur notaða hvaða matta brúna lit sem er nokkrum tónum dekkri en þinn húðlitur) og blandaði honum í glóbuslínuna með fluffy "blending" bursta. Ef þú vilt þá er mjög fallegt að stoppa eftir þetta skref setja smá kisu eyeliner og/eða maskara, rauðan varalit og þú ert tilbúin í fjölskylduboðið.











Fyrir ykkur sem viljið vera svolítið djarfar eða vantar bara pínu glimmer til gera daginn betri þá er bara að halda áfram :).
Ég tók lítinn bursta og notaði svartann augnskugga með smá glimmeri sem heitir Creep úr Naked palletunni(aftur hægt að nota hvaða svarta augnskugga sem er) og setti hann í glóbuslínuna og bjó til eins konar þríhyrning í ytri augnkróknum, blandaði honum örlítið við augnskuggana sem voru fyrir.












Því næst er best að laga aðeins til, bæta við litum og blanda eins og enginn sé morgundagurinn, ég bætti við brúna augnskugganum sem ég notaði áður og einnig ljósum lit á augnbeinið undir augabrúnina og blandaði meira.
Næst bar Too Faced Shadow Insurance Glitter Glue á augnlokið, það er mjög sniðugt þegar verið er að vinna með glimmer svo það haldist á sínum stað. Yfir það setti ég svo Mac glimmerið í Reflects antic gold. Ég persónulega notast við fingurnar þegar ég er að setja glimmer á sjálfa mig bara dýfi fingrinum í glimmerið og þrýsti svo á augnlokið. Ef þið notið bursta munið þá að þrýsta/ýta glimmerinu á en ekki strúka því yfir augnlokið, annars endið þið með allt glimmerið á andlitinu og gólfinu og út um allt.

 
Mynd frá themacupblog.blogspot.com


 Það er ekki nauðsynlegt að eiga glimmer lím til að festa glimmerið, það virkar til dæmis mjög vel að nota glimmer eyeliner eða blautan eyeliner í sama eða svipuðum lit og glimmerið og bera yfir augnskuggann.

Næst setti ég grænan eyeliner frá Gosh sem heitir Woody Green bæði á neðri vatnslínuna og efra augnlokið. Einnig setti Loréal augnskuggan í Time restitence white í neðri inni augnkrókinn. 
Neðan við neðri augnhárin setti ég örlítið af brúna og svarta augnskuggunum sem voru notaðir áður.
Maskarinn sem ég notaði var Maybelline colossal volume, og svona var útkoman.(því miður er erfitt að taka mynd af glimmeri því það hefur þann eiginleika að endurkasta flassinu rosalega, þess vegna varð ég að sleppa því að hafa flass. Treystið mér bara þetta er eins og diskókúla á augnlokunum)
Vona að þetta hafi hjálpað eitthvað, meira á leiðinni :)

(afsakið mismunandi lýsingu á myndunum það orðið dimmt og ´g var að prófa að taka myndir í mismuandi herbergjum með mismunandi ljós kveikt)


Saturday, December 1, 2012

Uppáhalds í Nóvember/vetur

Hér eru nokkrar vörur sem hafa verið í uppáhaldi hjá mér í vetur.
Fyrst er það Moroccan oil fyrir hárið, þetta er draumur í flösku. Hárið hefur fengið alveg rosalega útreið með aflitun og litun og svo tókst mér að rústa á mér hárinu með einni ákveðinni vöru *hóst*John Frida go blonder spreyið*hóst*.
Hárið á mér er sem sagt ekki upp á sitt besta, það er náttúrulega frekar fíngert og svo hefur það verið voða þurrt og líflaust núna í vetur, en Moroccan olían hefur hjálpað alveg helling. Hún er frekar dýr og fæst bara á hárgreiðslustofum(að ég held) en hinsvegar endist hún rosalega ég er búin að eiga mína í hátt í 6 mánuði og er varla búin með 1/4 af flöskunni. Ég set bara smá í hárið þegar það er blautt og ef það er extra leiðinlegt set ég líka pínulítinn dropa þegar það er alveg þornað.
Veit að það er tiltörulega ný komin Maroccan oil light sem er fyrir hár sem er ekki ofboðslega fíngert :)
Næst er það rakakremið mitt clinique dramatically different moisturizing lotion(keypti það út í BNA, fæ um 4 stykki(túbur, glös?) fyrir verð á einu hérna heima : /. Hef mikið notað rakakrems gelið og á einmitt extra af því ofan í skúffu en núna þegar veturinn er komin og loftið er svona þurrt hefur kremið virkað betur.
Muna að nota rakakrem , húðin ykkar mun þakka ykkur fyrir það líka í framtíðinni(minna hrukketí hrukk).
Næst er það maskarinn sem ég hef enda alltaf á að kaupa mér aftur og aftur. Ég er hræðileg þegar ég kem að maskörum er oft með 4 túbur opnar og einhverja auka sem ég á eftir að prófa ofan í skúffu. Er alltaf að reyna að finna þennan fullkomna eins og sanna maskara, hef prófað allt frá mjög ódýrum fínna til mjög mjög dýrra bara lala maskara(ég er að tala um þig Ysl faux cils).
En sá maskari sem ég finn mig alltaf kaupa aftur og aftur er Maybelline Colossal Volum’ Express, finnst hann frábær svona dagsdaglega og svo þegar ég ætla út á lífið nota ég hann og Dior maskarann minn saman.


Verð líka að lýsa yfir ást minna á Maybelline 24 color tattoo krem augnskuggunum, vá þeir eru yndislegir. Keypti um daginn litinn Eternal Gold sem er ótrúlega fallegur og gullitaður eins og nafnið gefur til kynna :) Er að spá í að gera smá förðun sem klikkar ekki í jólaboðin og sýna hérna fljótlega þar sem ég nota hann og svo Loréal Infaillable augnskuggannn í Goldmine yfir, það er gördjöss, svo bíðið spenntar :)
 

Links

everydayismakeupday@gmail.com youtube.com/everydayismakeupday

Sample Text